Monday, 31 May 2010

  • Currently
    Infinite Arms
    By Band of Horses
    see related

    Spilaði Jeff Who?

    Ég er búinn að vera duglegur að koma íslenskri tónlist á framfæri hér í Ningbo. Nemendur mínir fengu að heyra "barfly" með Jeff Who? núna í kvöld þegar ég var með "social club class". Ég kenndi þeim líka að segja "einn tveir þrír fjór" á íslensku eins og þeir félagar gera í umræddu lagi. Þetta var næstsíðasti social club tíminn minn en ég bað yfirmann minn um að fá að sleppa við þessa tíma því það fer of mikill tími í að undirbúa þá. Hún varð að þeirri beiðni minni en hins vegar gat ekki orðið við beiðni minn um að kenna færri tíma. Ég mun hins vegar hætta hjá þessum skóla eftir júnímánuð.

    Veðrið er búið að vera gott undanfarið hér. Sólin hefur skinið og hitinn þægilegur, í kringum 25 gráður. Ég var að kenna um helgina en í gær átti ég smá frítíma og þar sem veðrið var gott fór ég á hjólinu mínu í almenningsgarð ekki langt frá. Þar er ég búinn að finna mér stað þar sem ég oft sest eða ligg og hlusta á tónlist. Eftir það gerðist ég flottur á því og dressaði mig upp. Fór í fatabúð ekki langt frá þar sem ég bý. Mátaði boli og stuttar gallabuxur. Keypti mér tvo boli og viðkomandi buxur. Ég var mjög ánægður með þetta, sérstaklega að geta aðeins tjáð mig við stúlkuna sem hjálpaði mér. Þegar mér fannst einn bolurinn aðeins of stór gat ég tjáð það á kínversku. 很好! Um matartímaleytið fór ég með vinkonu minni upp í háskóla þar sem við borðuðum kvöldmat. Þar sem ég er í strangri fitun þessa dagana dugaði ekki annað en að fara á tvo veitingastaði. Á öðrum borðaði ég eggjarétt með gúrkum og kjöti, súpu og hrísgrjón (annar réttur sem ég keypti var ekki góður). Á hinum staðnum voru það ljómandi fínar núðlur. Það er alveg magnað hvað lítið er hugsað um hreinlæti á mörgum veitingastöðum. Maturinn er hins vegar alltaf ljúffengur þannig að ég kvarta ekki. Maður er bara vanur svo miklu hreinlæti heima.

    Í dag skokkaði ég í hádeginu og fór svo í skólann. Þar fékk ég til baka próf sem ég tók í síðustu viku. Var ég sáttur við niðurstöðuna eða 89 stig af 100. Svo fór ég að vinna í kvöld sem var nokkuð hressandi. Áður en ég byrjaði að kenna fór ég á góðkunnugan veitingastað og keypti þrjá rétti sem ég sporðrenndi án mikillar umhugsunar. Mér finnst voða gaman að fara á þennan veitingastað og velja mér rétti úr borðinu. Eins og vanalega tek ég strætóinn heim. Strætóinn á kvöldin er oft mjög troðinn en ég er farinn að venjast því. Ég hlusta bara á tónlist og læt hugann reika.

    Á morgun á ég smá frítíma og líklegt þykir mér að tennisspaðinn verði mundaður.

Sunday, 23 May 2010

  • Currently
    The ArchAndroid
    By Janelle Monae
    see related

    bollaður í hakk

    Á föstudaginn kenndi ýmissa grasa. Þá skellti ég mér í dýragarð með öðrum erlendum nemendum. Veðrið lék við okkur, sól og nálægt 30 stiga hita. Garðurinn var mjög fallegur og mikið af áhugaverðum dýrum þarna. Við borðuðum hádegismat í garðinum og var boðið upp á mikla veislu.

    013

    017

    039

    042

    Um kvöldið var ég að kenna og eftir kennslu fór ég með tveim nemendum mínum í nudd. Það var frekar sársaukafullt og þurfti ég nokkrum sinnum að biðja nuddarann um að vera ekki svona kröftugur. Ég held líka að líkaminn minn sé ekki í góðu ástandi og nuddarinn sagði það líka við mig að ég þyrfti að hreyfa mig meira. Sem er eitthvað sem ég vill ólmur gera en ekki haft nógu mikinn tíma. Hann Echo, annar nemandinn sem ég fór með vildi kynna mér fyrir "cupping" en þetta er hefðbundin kínversk lækningaraðferð. Það eru notaðir glerbollar, eldur og alkóhól og einhvern veginn búa þeir til þrýsting inní þessum bollum þannig að þegar þeir eru settir á bakið á manni dregst húðin inní bollana. Þetta er soldið heitt og skapar mikinn þrýsting á bakið. Samt ekki neitt voða sársaukafullt. Bollarnir eru á manni í um 10 mínútur og svo teknir af. Eftir standa rauðir hringir á bakinu en allt blóðflæði fer á staðinn þar sem bollarnir eru. Þetta á víst að vera voða gott fyrir heilsuna, gefa fólki meiri orku og koma í veg fyrir sjúkdóma. Hér geturu lesið meira um <a href="http://en.wikipedia.org/wiki/Fire_cupping">Cupping</a>.

    001 Ég og Echo vel bollaðir004 Ég og Jane002 Echo er hress

    Svo er ég bara búinn að vera að kenna um helgina. Það voru teknar nokkrar myndir í kennslustofunni í dag og sýni ég þær hér.

    194 Allir í stuði!196 Þessi heitir Augustine og er 18 ára.

    Á þriðjudaginn ætla ég að fara með Kim félaga Kóreumanni í tennis en það er spáð góðu veðri á morgun og þriðjudag.

     

Wednesday, 19 May 2010

  • Tennis

    Það var þá loksins að maður fann tíma fyrir smá sprikl og spilaði ég tennis við Baldur félaga minn í dag uppí í skóla. Það var mjög hressandi. Við erum mjög lélegir en ég var samt nokkuð sáttur hvað maður var nú sprækur og átti alveg nokkur öflug skot. Ég mun halda áfram að stunda tennis, það er engin spurning.

    Á föstudaginn eru erlendir nemendur í háskólanum að fara saman í ferð í dýragarðinn hérna í Ningbo. Maður kíkir með og hressir sig við.

    Annars er ég bara hress. Hef verið mjög hraustur undanfarið og vona ég að ég sé farinn að venjast umhverfinu betur. Ég lét laga hjólið þannig að ég er aftur kominn á þann fína fararskjóta. Í kvöldmat var það núðlur á litlum veitingastað nálægt heimili mínu. Vinkona mín býr ennþá hjá mér og er búin að finna sér vinnu. Hún bauð mér upp á baunamjólk á leiðinni heim sem bragðaðist ágætlega og á víst að vera voða holl. En ég er þreyttur og er ég farinn nú.

Wednesday, 12 May 2010

  • Currently
    All Days Are Nights: Songs For Lulu
    By Rufus Wainwright
    see related

    Vinnandi maður

     Annar enskuskólinn sem ég er að vinna hjá heitir Web International. Þetta er með stærri enskuskólum hérna í Ningbo. Það er drulludýrt að læra í þessum skóla og öðrum enskuskólum. Það er því mikið af krökkum að læra þar sem eiga ríka foreldra. Svo eru aðrir sem vilja læra ensku til að eiga möguleika á betra starfi. Það er mikið um alþjóðleg viðskipti hérna í Ningbo og það virðist vera starf sem flestir vilja komast í enda kannski möguleika á góðum launum þar. En ég sem sagt kenni þarna þrjá daga í viku. Mér finnst þetta ekkert sérstakur skóli og oft finnst mér kennsluefnið sem við styðjumst við algjört drasl og leiðinlegt. Ég reyni því oft að grípa til þess að gera eitthvað skemmtilegra með nemendum mínum eins og að spjalla um eitthvað eða fara í leiki. Helsta hlutverk mitt er líka að fá fólk til að tala og að hafa gaman af tímanum. Þetta fólk er að borga mikinn pening fyrir þetta og það er synd ef þetta er svo drulluleiðinlegt. Mér finnst vinnuumhverfið heldur ekkert sérstakt, það er enginn sérstakur mórall í gangi, aðallega af því allir eru svo önnum kafnir. Ég er líka sjálfur yfirleitt önnum kafinn þegar ég er að vinna þar en það kemur fyrir að maður fær smá hvíld og þá spjallar maður við nemendur eða fer og fær sér að eta. Það góða við að kenna þarna er hins vegar að þarna eru margir nemendur og hittir maður nýtt fólk á hverjum degi. Það er því nokkuð auðvelt fyrir mig að kynnast fólki þar sem margir eru áhugasamir um að spjalla við útlenska kennara.

    ningbo_web_international_english

    Þetta er annar vinnustaðurinn minn. Allt voða nýtískulegt hjá þeim og allt í gleri. Frekar kalt umhverfi ef þú spyrð mig. Það er mikið af huggulegu kvenfólki þarna (!)

    Dagurinn í dag var nokkuð hressandi. Veðrið var eðall, um 27 gráður og sól. Vaknaði klukkan 8:10. Setti í mig brauðhleif og laumaði banana í töskuna mína. Úti beið mín mótorhjólavagn og heilsaði ég ökumanninum og tók unga konan undir stýri vel undir kveðjuna mína. Ég sagðist vilja fara í háskólann í Ningbo og gaf hún til kynna að slíkt væri vel við hæfi. Það er smá labb frá hliðinu að alþjóðlegu byggingu háskólans og naut ég tónlistar úr Ípóði mínum. Gott ef að Michael Jackson kom ekki við sögu í þeirri stuttu yfirferð. Kínversku tíminn var bara nokkuð skemmtilegur í morgun. Ég hafði svo hádegismat með bekkjarfélaga mínum, sem er eldri maður frá Bandaríkjunum. Heimili hans er í Michigan en hann er frá L.A. Hann er fjölskyldumaður, held hann eigi 4 eða 5 börn. Sá var flippaður að fara til Kína að kenna ensku í Norður Kína. Svo ákvað hann að fara til Ningbo að læra kínversku. Þetta er rólyndismaður og á köflum full rólegur á því, eins og skjaldbaka en hann er fínn félagi. Það er mjög fyndið þegar hann talar kínversku í tímum því það líða stundum um 5 sekúndur á milli orða...wo.....qu.....góður. Hann er líka mjög áhugasamur um Ísland. Í hádesgihléinu skellti ég mér svo í klippingu. Ég gat allavega tjáð mig um að ég vildi klippa hárið stutt. Þáði ég hárþvott en skildi ekki mikið í því það sem klipparinn sagði við mig. Þetta var ungur strákur sem talaði ekki ensku. Fæstir gera það hérna. Þetta var hræódýrt. Ég reiddi fram 10 yuan sem jafngildir um 200 kr. Það er ansi margfalt sem maður borgar fyrir svipað á Íslandi! Ég var nokkuð sáttur við klippinguna. Fyrr um morguninn hafði bekkjarfélagi minn boðist til að klippa mig. Sá er lærður klippari en þar sem við höfðum engan stað til að fara á þáði ég bara klippingu á hárgreiðslustofu. Mér fannst hins vegar eftir á hárið mitt enn vera nokkuð þykkt þannig að ég bað kappann um að þynna hárið fyrir mig. Fórum við þá út á skólalóð eftir miðdegistímann og þynnti hann á mér hárið. Voða rómó (!). Honum fanst þetta samt soldið vandræðalegt en mér fannst þetta mjög hressandi sérstaklega þar sem veðrið var svo gott. Þessi gaur er frá Kóreu og talar nánast enga ensku þannig að við tölum saman á okkar fáguðu byrjendakínversku. Það gengur bara ótrúlega vel miðað við aldur og fyrri störf. Ég bauð honum svo upp á hamborgara og svo skildu leiðir. Ég ákvað að ganga heim í góða veðrinu og njóta tónlistar úr Ípóðanum. Ég er oftar en ekki með hann á Sjuffle og ég man allavega að "Supermassive black hole" hljómaði og kom mér í gott sving.

    Er heim var komið lagaði ég mér te (blóma og grænt te) og hitaði mér Baozi sem er brauðbolla með sætri fyllingu. Svo fór ég að vinna í TESOL gráðunni. Leiðbeinandinn minn hafði sent mér póst og hrósaði mér fyrir vel unna síðustu einingu sem ég var ánægður með. Ég kláraði aðra einingu í kvöld (nr. 13 af 20). Ég borðaði kvöldmat með vinkonu minni á fljótrétta veitingastað hérna rétt hjá heimili mínu. Það var tofu, grænmeti og smá kjöt og auðvitað hrísgrjón sem maður sporðrenndi. Núna þarf ég svo að fara að sofa þar sem það er skóli og vinna á morgun.

    Um daginn keypti ég þessi fallegu jarðarber uppi í skóla og mangó. Mér fannst þessi jarðarber alveg mergjuð og mangóarnir fullkomlega þroskaðir. Það er mikið af ávaxtasölum í skólanum og í kringum skólann og þykir mér mikilvægt að versla jarðarber og banana hjá þessu fólki. Þetta er ódýrt, gott og þægilegt.

    004

Tuesday, 04 May 2010

hjalmara

  • Visit hjalmara's Xanga Site
    • Member Since: 2/20/2010

Archives

Don't worry - your calendar is here… to see it in action just click "Save" above and refresh the page.

Recommended

[no recommendations]

Groups

[no groups]